Í dag fimmtudaginn 21. júní voru styrkir Norðurorku til samfélagsverkefna afhentir við hátíðlega athöfn í sal Norðurorku að Rangárvöllum á Akureyri. Hæsta styrkinn í ár fékk Kvennadeild KA/Þórs í handbolta til kaupa á treyjum fyrir yngri flokka.
Alls sóttu 153 félög, stofnanir og einstaklingar um þegar auglýst var eftir umsóknum um styrki til samfélagsverkefna fyrr í vetur. Verkefnin eru mjög margbreytileg, af öllum stærðum og gerðum ef svo má segja. Vinnuhópnum sem gerði tillögu að úthlutun styrkja var því vandi á höndum en þótt verkefnið væri erfitt var það um leið skemmtilegt. Auk þess að byggja á þeirri stefnumörkun sem mótuð var í stefnumótunarvinnu stjórnar og framkvæmdaráðs s.l. haust mótaði nefndin sér viðmið sem lögð voru til grundvallar og er þeim nánar lýst hér.
Eftirtaldir aðilar hljóta styrk að þessu sinni:
Nafn styrkþega | verkefnið | fjárhæð |
Aflið - Samtök gegn kynferðis og heimilisofbeldi á Nl. | rekstrarstyrkur | 100.000 |
Leikfélagið Adrenalín | leiklist eflir lífsleikni | 150.000 |
Æskulýðssamtök Laufásprestakalls | æskulýðsstarf | 100.000 |
Hjólabrettafélag Akureyrar | bætt aðstaða | 100.000 |
Hrafnhildur Ósk Birgisdóttir | afreksstyrkur landsliðið á skautum | 75.000 |
Norræna félagið Ólafsfirði | norrænar sumarbúðir | 200.000 |
Kvennahandbolti KA og Þór 8. til 4. flokkur | keppnistreyjur kvfl. KA/Þór | 400.000 |
Safnasafnið | úrbætur á aðgengi að safninu | 200.000 |
Textílbomban - 19 textíllistamenn | samsýning Listasumar | 300.000 |
Öldrunarheimilin á Akureyri | garður og hænsnahús | 200.000 |
Karatefélag Akureyrar | félagsstarfið | 100.000 |
Multicultural Council | fjölmenning viðburðir o.fl. | 100.000 |
Fimleikafélag Akureyrar | æfingabúðir - koma erl. þjálfara | 150.000 |
Gamli barnaskólinn Skógum Fnjóskadal | uppbygging safns | 100.000 |
Sundfélagið Óðinn | startbúnaður | 100.000 |
Skíðafélag Akureyrar | bætt aðstaða við gönguhús | 100.000 |
Lionsklúbburinn Vitaðsgjafi | lyftukaup - sundlaugin að Hrafnagili | 100.000 |
Birna Guðrún Baldursdóttir | tilr. verkefni klúbbur einhverfa unglinga | 75.000 |
Ungmennafélagið Smárinn - Hörgársveit | fótboltamörk við Þelamerkurskóla | 250.000 |
Leikklúbburinn Krafla - Hrísey | leiklistarnámskeið fyrir börn | 100.000 |
Sumarbúðir KFUM og KFUK Hólavatni | viðbygging við félagsmiðstöð | 250.000 |
Skátafélagið Klakkur | námskeið fyrir foringja | 100.000 |
Klakarnir - útivistarklúbbur fatlaðra barna | námskeið fyrir þjálfara | 150.000 |
Alberto Porro Carmona | tónlistarkennsla - barnabók | 100.000 |
Hafdís Sigurðardóttir | afreksstyrkur - frjálsar íþróttir | 75.000 |
Akureyrarkirkja | sumaropnun | 200.000 |
Foreldrafélag strengjadeildar Tónlistarskólans | félagsstarf - strengjamót í Hörpu | 150.000 |