Hæstánægðir með sjómannahátíð

„Þetta tókst allt saman alveg framúrskarandi vel og allir eru hæst ánægðir,“ segir Sæmundur Pálsson forsvarsmaður Sjómannahátíðar sem efnt var til á Akureyri um sl. helgi. Í tengslum við hátíðina var einnig boðið upp á ferð til Siglufjarðar og var þátttakan að venju góð. Þetta er í þriðja sinn sem togarajaxlar hvaðeina af landinu koma saman og gera sér glaðan dag. Kvöldverður var á Oddvitanum, þar sem þau Helena Eyjólfs og Raggi Bjarna skemmtu og fengu gömlu sjómannahjörtun til að slá hraðar.

Veislustjóri var Valgeir Guðjónsson og félagarnir Gylfi Ægisson, Rúnar Þór og Megas léku fyrir dansi. Sjómannafélag Eyjafjarðar heiðraði við þetta tækifæri tvo fyrrverandi sjómenn, þá Birgi Sigurðsson og Sæmund Pálsson. Hluti hópsins lagði svo leið sína til Siglufjarðar á laugardag, en eftir sjómannamessu var farið í Sildarminjasafnið og afhent líkan af nýsköpunartogaranum Elliða SI 1, sem fórst 10. febrúar 1962 og með honum tveir menn. Á bakaleiðinni litu sjómenn við í Bruggverksmiðju Kalda og flestir sigldu svo með Húna frá Árskógssandi til Akureyrar.

Sæmundur segir að þátttakendur hafi verið ánægðir með dagskrána sem í boði var „og ég heyri ekki annað en allir hafa verið kátir eftir hátíðina líkt og venja er til,“ segir hann.

Nýjast