Hækkanir geta torveldað kjaraviðræður

Björn Snæbjörnsson/mynd Karl Eskil
Björn Snæbjörnsson/mynd Karl Eskil

„Þessar hækkanir hjá ríki og sveitarfélögum rýra eðlilega kaupmátt heimilanna, það segir sig sjálft. Þær skila sér beint út í verðlagið, “ segir Björn Snæbjörnsson formaður Einingar- Iðju um hækkanir á gjaldskrám og neyslusköttum í upphafi ársins.

Kjarasamningar voru framlengdir í síðustu viku, almennir kauptaxtar hækka á morgun um 11.000 krónur á mánuði að lágmarki. Björn segir að hækkanir á gjaldskrám hins opinbera séu verðbólguhvetjandi.

 Öflugt verðlagseftirlit

 „Okkar svar verður að halda úti öflugu verðlagseftirliti og upplýsa fólk um stöðu og þróun mála. Þannig verður vonandi hægt að koma í veg fyrir enn frekari hækkanir. Ég segi ekki að hækkun launa á morgun étist strax upp, en þær rýrna vissulega.“

 1.    mars

 „Já, já, þennan dag hækka vörugjöld á sykraðar matvörur, sú hækkun skilar sér út í verðlagið fljótlega og við bætist að virðisaukaskattur á gistiþjónustu hækkar síðar á árinu. Þessar hækkanir auka verðbólguna með tilheyrandi afleiðingum.“

 Rætt við félagsmenn

 „Samningar renna út 30. nóvember og við hjá Einingu-Iðju ætlum að vera klár með kröfugerðina fyrir sumarið. Núna tekur við að undirbúa almenna fundi og heyra hvað hinn almenni félagsmaður vill gera. Ef hækkanir verða tíðar á næstu vikum og mánuðum verða viðræðurnar um nýjan kjarasamning erfiðari. Það segir sig sjálft.“

 Grenivík til fyrirmyndar

 Sveitarstjórn Grýtubakkahrepps hefur ákveðið að hækka ekki þjónustugjöld á þessu ári. „Hreppurinn er fjárhagslega vel settur og þessi ákvörðun er til fyrirmyndar. Vissulega eru ekki öll sveitarfélög í þessari stöðu, en þau eru þó einhver. Það er nauðsynlegt að allir sameinist um að halda verðbólgunni niðri, sem er okkar helsti óvinur,“ sagði Björn Snæbjörnsson í morgun.

karleskil@vikudagur.is

Nýjast