Gunnlaugur hættir með KA

Gunnlaugur Jónsson (t.v.) þegar hann tók við liðinu fyrir tveimur árum.
Gunnlaugur Jónsson (t.v.) þegar hann tók við liðinu fyrir tveimur árum.

Gunnlaugur Jónsson þjálfari KA í 1. deild karla í knattspyrnu ætlar að láta af störfum og stýrir liðinu ekki á næstu leiktíð. Þetta tilkynnti Gunnlaugur á lokahófi knattspyrnudeildar KA í gærkvöld og fram kemur á vef RÚV.

Gunnlaugur tók við KA liðinu árið 2010 eftir að hafa þjálfað Val í úrvalsdeildinni. KA varð í 4. sæti 1. deildar sem lauk í dag.

Nýjast