Grunnskólar Akureyrar eru í fararbroddi þegar kemur að jafnréttisáætlunum en allir skólar bæjarins hafa sett sér aðgerðabundnar áætlanir. Þetta kemur fram á vef Jafnréttisstofu. Skólarnir skila jafnréttisáætlunum inn til Samfélags- og mannréttindaráðs Akureyrar sem tekur þær til umfjöllunar.
Til þess að fylgja þessari vinnu eftir hefur tímabundið verið ráðinn verkefnastjóri sem hafa mun yfirumsjón með vinnu við afnám staðalímynda í grunnskólum Akureyrar. Verkefnið er unnið í samvinnu við skóladeild Akureyrarbæjar og Jafnréttisstofu. Víða í skólakerfinu er mikið verk að vinna við mótun jafnréttisstefnu í samræmi við lög og opinber markmið. Því ber að fagna frumkvæði Samfélags- og mannréttindanefndar Akureyrarbæjar að tryggja skólunum nauðsynlegan stuðning við innleiðingu jafnréttis inn í allt skólastarf, segir á heimasíðu Jafnréttisstofu.
throstur@vikudagur.is