Grimsley valin best

Kayla Grimsley (t.h) í leik með Þór/KA.
Kayla Grimsley (t.h) í leik með Þór/KA.

Kayla Grimsley, hin bandaríska knattspyrnukona í liði Íslandsmeistara Þórs/KA, var í dag útnefnd besti leikmaður seinni hluta Íslandsmótsins í Pepsi-deild kvenna, í umferðum 10-18. Þá var þjálfari liðsins, Jóhann Gunnar Kristinsson, valinn sá besti á sínu sviði og stuðningsmenn Akureyrarliðsins voru útnefndir bestu stuðningsmennirnir. Einnig var valið í úrvalslið seinni hluta mótsins þar sem Þór/KA átti fimm fulltrúa.

Úrvalsliðið er þannig skipað:

Markvörður: Chantel Jones (Þór/KA). Varnarmenn: Arna Sif Ásgrímsdóttir (Þór/KA), Glódís Perla Viggósdóttir (Stjörnunni) og Guðrún Arnardóttir (Breiðabliki). Miðju- og sóknarmenn: Danka Podovac (ÍBV), Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir (Stjörnunni) Kayla Grimsley (Þór/KA) Katrín Ásbjörnsdóttir (Þór/KA) Sandra María Jessen (Þór/KA) Elín Metta Jensen (Val) og Shaneka Gordon (ÍBV).

Nýjast