Grenivík:Útsvarstekjur rjúka upp

Guðný Sverrisdóttir. Mynd/karl Eskil
Guðný Sverrisdóttir. Mynd/karl Eskil

Útsvarstekjur Grýtubakkahrepps verða um 140 milljónir króna á þessu ári, en samkvæmt endurskoðaðri áætlun hreppsins var gert ráð fyrir 128 milljónum króna. Útsvarstekjurnar verða með öðrum um 10% hærri en áætlað var. Í fyrra voru útsvarstekjur sveitarfélagsins 117 milljónir króna. Guðný Sverrisdóttir sveitarstjóri segir þessa þróun ánægjulega, enda um að ræða mikilvægasta tekjustofn sveitarfélagsins.

„Í fyrsta lagi hefur íbúum hérna fjölgað á árinu, sem þýðir auknar tekjur í flestum tilvikum. Í öðru lagi nefni ég gott atvinnuástand á staðnum, hérna þekkist varla atvinnuleysi. Í þriðja lagi nefni ég svo til sögunnar góðar tekjur sjómanna, þeir hafa sannarlega skaffað vel á árinu.“

Guðný segir að á næsta ári sé fyrirhugað að ráðast í ýmsar framkvæmdir á vegum sveitarfélagsins, auknar útsvarstekjur séu þess vegna afar ánægjulegar.

„Vissulega var vanáætlað hjá okkur, en þessi skekkja er skemmtileg og kætir okkur öll þessa dagana.“

karleskil@vikudagur.is

Nýjast