Gratineraður skötuselur

Gunnlaugur Antonsson
Gunnlaugur Antonsson

Kristín Snæbjörnsdóttir  skoraði í síðasta blaði á Gunnlaug Antonsson á Dalvík að koma með eitthvað gott úr sínu eldhúsi. Gunnlaugur brást vel við áskoruninni.

Gratineraður skötuselur

1 -1 ½ kg skötuselur, vel snyrtur og skorinn í tveggja sentimetra þykkar sneiðar.

4 egg, 3 msk soja og 4 msk sætt sinnep pískað saman. Fiskurinn lagður í og látinn bíða í eina klst.

6 stk gulrætur, 200 gr beikon, 3 stk epli og 2-3 stórir laukar – skorið niður og léttsteikt á pönnu með hvítlauk, sítrónupipar og karrý. Steikt grænmetið sett í eldfast mót.

Fiskinum velt upp úr hveiti, sítrónupipar, hvítlaukskryddi og oregano, lokað á pönnu og því næst lagður ofan á grænmetið.

Sósan

½ gráðostur

½ ltr rjómi

4 msk soja

4 msk ferskt timian

100 ml Sharwood´s Mango chutney

Allt sósuefnið hitað saman í potti og hellt yfir fiskinn. Bakað í ofni í 15 mín við 180°c. Rifinn ostur settur yfir í restina.

Borið fram með salati, brauði og hrísgrjónum – verði ykkur að góðu.

Hvíttlauksbrauð

 

4 dl. volgt vatn

1 tsk. salt

3 msk. hveitiklíð

3 msk. sykur

3 tsk. ger

2 dl heilhveiti

ca. 8 dl hveiti

 

Hnoðað og hefað í klukkutíma, rúllað upp og skorið og mótað í aflangar bollur.

Ca. 4 -5 hvítlauksrif söxuð og blandað í ca 1 dl. olíu það svo borið á bollurnar og rifinn ostur ofan á það og smá hvítlauksalt þar ofan á. Sett inn í 50° heitan ofn og hefað í smá tíma og hitin þá hækaður í 160-180°

Ég skora svo á bróður minn Freyr Antonsson að koma með næstu uppskrift.

Nýjast