Götuleikhússýningar á Akureyri og Húsavík

Ragnarock,  Leikklúbburinn Saga og Klettarnir frá Færeyjum sýna tvær götuleikhússýningar á Akureyri og Húsavík um helgina nk. Önnur sýningin nefnist Völvan og er flutt af danska leikhópnum Ragnarock sem er mörgum Akureyringum að góðu kunnur.  Hópurinn hefur komið nokkrum sinnum áður til landsins og tekið þátt í Fenris-verkefnum, sem eru samstarfsverkefni unglingaleikhópa á Norðurlöndum. Sýningin hefur verið leikin víðsvegar um land, m.a. á Patreksfirði , Vík og á LungA hátíðínni á Seyðisfirði.  Völvan verður sýnd í göngugötunni nálægt Skátagilinu á föstudaginn kl. 13 og er aðgangur ókeypis og ætlað öllum.

Saman vinna leikhóparnir að annarri götuleiksýningu sem hefur vinnuheitið Vatn, en það hvílir ákveðin leynd yfir henni. Sýnt verður á Akureyri og Húsavík um helgina, en ekki fæst uppgefið hvar eða hvenær sýnt verður. Þessi sýning er upphafið að frekara samstarfi þessara leikhópa sem eru allir skipaðir ungmennum á aldrinum 14 ára til tvítugs.

 

Nýjast