Gönguvika í Eyjafirði hófst í gær og stendur fram á sunnudag. Þær skipulögðu gönguferðir sem boðið verður upp á koma í stað vikulegrar afmælisgöngu og er um að gera fyrir fólk að taka þátt hollri útiveru í gönguvikunni sér til hressingar. Gönguferðirnar eru á vegum ýmissa aðila. Hægt er að nálgast ítarlegri upplýsingar hjá þeim sem skipuleggja hverja göngu fyrir sig. Í gær var gengið á Haus í Staðarbyggðarfjalli og í kvöld kl. 19.00 verður gengið á Ystavíkurhnjúk en um er að ræða 2-3 tíma göngu á vegum Ferðafélags Akureyrar. Dagskráin næstu daga er svo þessi:
Fimmtudagur 5. júlí:
Gil í Sölvadal
Stutt 2-3 tíma ganga á vegum Ferðafélags Akureyrar.
Farið frá Strandgötu 23 kl. 19.00.
Ókeypis fyrir félagsmenn / aðrir kr. 500.
Föstudagur 6. júlí:
Kvöldganga um Gömlu Akureyri
Gangan byrjar við inngang Menntaskólans á Akureyri - Gamla skóla, kl. 20.00.
Tímalengd: 1.5 klst. Verð: án endurgjalds.
Athugið forskráning er nauðsynleg (fyrir kl. 19.00) í síma: 450 1050.
Laugardagur 7. júlí:
Glerárdalshringurinn - 24 tindar
Gengið er á 24 tinda um 45 km leið með um 4.500 m gönguhækkun. Reikna má með um 20 28 klst. í gönguna. Nánari upplýsingar m.a. varðandi skráningarfrest á www.24x24.is undir Hringurinn.
Laugardagur 7. júlí:
Glerárdalsbotn, Jökulborg að Kerlingu
Leggur tvö í Glerárdals-hringnum. Erfið en stórkostleg leið úr Öxnadal upp á Jökulborg og þaðan eftir fjallatoppum fyrir botni Glerárdals að Kerlingu, samtals 6 tindar. Endað við Finnastaði í Eyjafirði.
Brottför kl. 8.00.
Verð kr. 15.000.
Ferð á vegum Naturalis.
Laugardagur 7. júlí:
Hjaltadalsheiði. 1030 m
Ekið er fram í Hörgárdal að Ásgerðarstaðaseli. Gengið fram dalinn og yfir heiðina niður Hjaltadalinn að Reykjum og þaðan ekið heim. Vaða þarf ár á leiðinni (vaðskór). Vegalengd 29 km.
Verð: kr. 9.000 / kr. 8.500.
Brottför frá FFA kl. 8.00.
Sunnudagur 8. júlí:
Gönguferð um Krossanesborgir
Gengið um Krossanesborgir og hugað að minjum, fuglum og gróðri. Gangan hefst kl. 13.00 frá bílastæðinu austan við Byko. Tímalengd 2 klst. Fararstjórar: Sverrir Thorstensen og Jón Ingi Cæsarsson.
Verð: án endurgjalds.