„Það verður vissulega eftirsjá af staðsetningunni, en nýir tímar taka nú við og óhætt að segja að við erum bjartsýn á framtíðina,“ segir Smári Ólafsson stjórnarformaður BSO. Það félag mun heyra sögunni til um komandi mánaðamót, en 1. maí næstkomandi ganga bílstjórar hjá BSO til liðs við hina gamalkunnu leigubílastöð, Hreyfill.
Draumar geta ræst, sem betur fer. Strax í áttunda bekk átti Freysteinn Sverrisson sér þann draum að verða leikari þegar hann yrði stór og að því stefndi hann í námi sínu til stúdentsprófs á listnáms- og hönnunarbraut í VMA. Stúdentsprófið var í höfn vorið 2022 og í þau ár sem Freysteinn var í VMA greip hann öll þau tækifæri sem gáfust til að leika – í Leikfélagi VMA, Draumaleikhúsi Péturs Guðjónssonar, Leikfélagi Akureyrar, Leikfélagi Hörgdæla og Freyvangsleikhúsinu.
Nýverið fjárfesti Bruggsmiðjan Kaldi í eimingartækjum sem nú er búið að setja upp í verksmiðjunni á Árskógssandi. Með eimingartækjunum opnast möguleikar fyrir Bruggsmiðjuna á að framleiða sterkt vín: Vodka, Gin, Romm eða Whiskey sem dæmi.
Á Akureyri rekum við níu grunnskóla, það sem einkennir skólasamfélagið okkar er rík menning samstarfs; skólarnir vinna saman frekar en að keppa innbyrðis, sem skapar dýrmætan vettvang fyrir bæði starfsfólk og nemendur.
Landssamband eldri borgara leggur ríka áherslu á að félög eldri borgara um allt land láti rödd sína heyrast, í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga. Mikilvægt er að málefni eldra fólks séu sýnileg í kosningabaráttunni og að framboð í hverju sveitarfélagi geri skýra grein fyrir stefnu sinni í málum sem snerta líf og velferð eldra fólks.
Kannast þú við að lenda í vandræðum með bílastæði þegar þú sækir þjónustu í Sunnuhlíð? Hvort sem þú átt leið til læknis, í sjúkraþjálfun eða bakarí er líklegt að þú svarir spurningunni játandi og við viljum finna lausnir!
Bílstjórar BSO munu um næstu mánaðamót ganga til liðs við Hreyfil. Leit stendur yfir að nýrri bækistöð fyrir starfsemina, en gamla BSO stöðin þarf að víkja fyrir nýbyggingum.
Sveitarstjórn Norðurþings tók ársreikning 2025 til fyrri umræðu á fundi sínum þann 19. mars sl. Þrátt fyrir miklar áskoranir í rekstri er rekstrarniðurstaða A-hluta jákvæð um tæpar 9 milljónir króna. Í samstæðunni, A- og B-hluta saman, er tap upp á 16 milljónir króna. Er það að stærstum hluta tilkomið vegna taps Hafnasjóðs sem varð fyrir miklu tekjufalli vegna rekstrarstöðvunar PCC. Á móti skilaði Orkuveita Húsavíkur góðri afkomu og jafnaði nokkuð stöðuna á móti tapi Hafnasjóðs.