Glæsilegur miðaldabátur sjósettur á Akureyri

Í morgun var sjósettur við Slippinn Akureyri, glæsilegur miðaldabátur, sem hefur verið í smíðum í nokkur ár. Það er Haraldur Ingi Haraldsson sem á veg og vanda að smíðinni, en báturinn er gerður eftir skoskum miðaldabát sem gerður er til eyjasiglinga. Haraldur Ingi segir að mikil vinna liggi að baki smíðinni, m.a. hafi farið mikill tími í alls kyns pælingar um það hvernig hlutirnir ættu að vera. Hann vill ekki gefa upp hversu margir tímar fóru í smíði bátsins. Haraldur segir að starfsmenn Slippsins og félagar í Nökkva, siglingaklúbbnum á Akureyri, hafi gefið góð ráð við smíðina en hann var með aðstöðu í gamla Slipphúsinu. Báturinn, sem er tæpir 6 metrar að lengd, er úr krossvið, furu og eik og sagðist Haraldur hafa fengið eikina úr gömlum lager hjá Slippnum frá sjöunda áratugnum. Um helgina verða Miðaldadagar á Gásum í Hörgársveit og verður báturinn við Gáseyri meðan á hátíðinni stendur. Nökkvamenn munu svo fá bátinn til afnota til kennslu og segir Haraldur að markmiðið með því sé að auka áhuga á róðri og miðaldasiglingum.

Nýjast