Geymir skútuna á Akureyri

Mikko Oksanen frá Finnlandi var að dytta að skútunni sinni, Ninni, við smábátabryggjuna á Akureyri þegar Vikudagur átti leið hjá, en hann ætlar að geyma skútuna við bryggjuna í vetur. „Ég ætlaði að fara með hana til Grænlands en slasaði mig á fæti á leiðinni og þurfti aðhlynningu á sjúkrahúsinu hér í bænum. Mér leist svo vel á þessa bryggju að ég ákvað að vera. Þetta er róleg og falleg bryggja,” segir Oksananen.

throstur@vikudagur.is

Nýjast