Stefnt er að því að gervigrasvöllur rísi á KA-svæðinu en framkvæmdir gætu hafist í byrjun næsta árs. Þetta segir Nói Björnsson formaður íþróttaráðs hjá Akureyrarbæ. Hann segir að unnið sé að því í samstarfi við KA um að fá endanlega niðurstöðu í málið en umræður um nýjan samning séu komnar langt á veg. Talsverðar breytingar þarf að gera í kringum KA-heimilið vegna fyrirhugaðra framkvæmda, m.a. til að koma að aðstöðu fyrir áhorfendur.
Að sögn Nóa gæti kostnaðurinn við framkvæmdina numið allt að 250 milljónum króna. Það er ekkert hægt að fara í felur með það að svona framkvæmd kostar sitt. Það er ýmislegt sem hangir á spýtunni við svona verkefni og aðstaðan við KA-heimilið þarf að breytast á ákveðnum stöðum. En ég ítreka það að þetta er ekki farið í gegnum kerfið og það á eftir að skrifa undir samninga. Drögin eru í vinnslu í kerfinu, segir Nói.
Hann segir ennfremur að endanlegir samningar ættu að liggja fyrir um miðjan ágúst.