Gegnir klassísku hlutverki

Brynja Harðardóttir fyrir utan Hof. Mynd/Þröstur Ernir.
Brynja Harðardóttir fyrir utan Hof. Mynd/Þröstur Ernir.

„Eitt af meginhlutverkum hljómsveitarinnar er að vera vettvangur fyrir tónlistarfólk á svæðinu svo við missum ekki allt hæfileikafólkið suður,” segir Brynja Harðardóttir framkvæmdastjóri Sinfoníuhljómsveitar Norðurlands. Hljómsveitin heldur aðventutónleika í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri á laugardaginn kemur og eru þeir einir af sex tónleikum SN í vetur. Blaðamaður Vikudags settist niður með Brynju.

„Það var algjör bylting að komast inn í Hof og tekjur af miðasölu hafa aukist um sjö milljónir á ári, úr einni milljón upp í átta. Hljómsveitin fékk líka fyrst fast húsnæði með Hofi. Áður var hún á flakki á milli húsa sem voru ekki ætluð fyrir tónleika. Ég hef sagt að með tilkomu Hofs hafi Sinfóníuhljómsveit Norðurlands orðið til fyrir alvöru, þá sérstaklega í augum ungs fólks. Hljómsveitin er sýnilegri, með góða aðstöðu og sal með frábærum hljómburði.

Meiri alvara

Sjálfsmynd hljómsveitarinnar eflist með þessu og bæði hljóðfæraleikarar og áhorfendur fá meira út úr tónlistinni. Þetta er eins og með öll önnur störf að þú nýtur þín best í réttri vinnuaðstöðu. Hof hefur einnig gert það að verkum að fólk tekur SN af meiri alvöru en áður og það skiptir mjög miklu máli," segir Brynja.

Nánar er rætt við Brynju í prentútgáfu Vikudags.

throstur@vikudagur.is

 

 

Nýjast