Tveir ítalskir pílagrímar lögðu af stað í fimm mánaða gönguferð frá Munkaþverá í Eyjafirði til Rómar í upphafi vikunnar. Þeir sögðu Vikudegi þegar þeir voru að leggja af stað að þetta gerðu þeir ekki síst til að finna sjálfa sig og til þess að verðafyrstir manna til að fara þessa leið frá því að Nikulás Bergsson, ábóti á Munkaþverá gekk þessa leið um miðja 12. öld og hélt svo áfram til Jerúsalem.
Grátið undir fyrirbænum
Þeir Giovanni Mercandalli, efnafræðingur á eftirlaunum frá Milano og húsgagnasmiðurinn Nino Guidi frá Pisa voru hrærðir þegar þeir komu að Munkaþverá í sólskini á mánudagsmorgun og Nino Guidi varð að orði þar sem hann horfið í kringum sig: Þetta er fallegur dalur! Tveir prestar kólþólsku kirkjunnar, þeir Hjalti Þorkelsson prestur á Akureyri og faðir Gabríel frá Argentínu en starfandi í Hafnarfirði, fylgdu þeim á staðinn og blessuðu ferðalagið framan við Munkaþverárkirkju. Maríubænir föður Gabríels voru greinilega áhrifaríkar, því þótt ganga þeirra félaga sé ekki nema að öðrum þræði trúarleg, þá vöknar þeim um augu undir bæninni.
Á labbi um landið
Nú, um það leyti sem lesendum berst Vikudagur, eru þeir á göngu í átt til Seyðisfjarðar þar sem þeir hyggjast fara í skip þann 5. júlí, en þeir búast við að vera komnir austur um eða upp úr mánaðarmótunum. Síðan munu ganga þeirr liggja í gegnum Danmörku, þar sem tveir félagar þeirra munu bætast í hópinn, og þá Þýskaland, Frakkland, Sviss og loks yfir Alpana og niður til Ítalíu á hina fornu og frægu pílagrímaslóð Via Francigena niður til Rómar. Alls eru þetta um 2240 mílur eða tæplega 3.600 kílómetrar.
Nikulás Bergsson
Þeir hafa verið lengi að undirbúa þessa merku ferð sem eins og áður segir er farin í fótspor Nikulásar Bergssonar sem var ábóti á Munkaþverá. Nikulás fór þessa ferð um miðja 12. öld og skrifaði um þessa för sína ítarlega ferðasögu á latíu og er handritið til Kaupmannahöfn og hefur verið þýtt og heitir Landaleiðarvísir og borgarskipan. Er það stundum sagt fyrsta landafærðiritið sem skrifað hefur veirð af Íslendingi.
Árið 1999 gerði Seylan kvikmyndagerð heimildarmynd fyrir sjónvarp sem hét "Suðurganga Nikulásar" en þar varr fjallað um pílagrímsferð Nikulásar Bergssonar suður til Rómar og Landsins helga um miðja 12. öld. Rakin varr slóð hans suður, skýrt frá því sem fyrir augu hans bar á leiðinni, dregin upp mynd af fjölbreyttu mannlífi á hinni löngu leið pílagrímsins og sýnt fram á mikilvægi slíkra tengsla fyrir íslenskt miðaldasamfélag. Kvikmyndatökumenn Seylunnar voru samtals um tvo mánuði við upptökur í 10 löndum.
Hafa oft gengið saman
Þeir félagar Giovanni og Guidi ætla hins vegar að vera 5 mánuði á leiðinni og vera komnir til Rómar í nóvember. Í samtali við Vikudag sögðust þeir ekki óttast að verða leiðir hver á öðrum enda hefðu þeir farið í margar fjallgöngur og gegnið marga pílagrímaleiðir saman, meðal annars slóðina til Santiago de Compostela og Via Francigena.
Alþjóðleg kynning
Þeir hafa verið í sambandi við alþjóðleg samtök um pílagrímaslóðir m.a. til Rómar en talsverð starfsemi er í kringum GPS merkingar á slíkum slóðum og kortlanginu fyrir pílagríma og áhugafólk um sögu sem vill í vaxandi mæli ganga slíkar leiðir. Þeir félagar hafa í samstarfi við þessa aðila tkið að sér að kortleggja slóð Nikulásar á Munkaþverá og gera hana aðgengilega fyrir þá sem hugsanlega hafa áhuga á að leika þetta eftir. Í samræmi við þetta eru þeir í netsambandi og senda frá sér skýrslur um framgang ferðarinnar í samstarfi við ýmsa ítalska fjölmiðla inn á sérstaka vefsíðu og þegar upp er staðið á Slóð Nikulásar frá Munkaþverá að vera aðgengileg og þekkt í heimi pílagrímagönguferða. Þeir Giovanni Mercandalli og Nino Guidi segja þessa ferð ekki einvörðungu enduruppgvötun á gamalli trúarlegri gönguleið heldur hafi þetta líka táknrænt gildi fyrir Evrópu samtímans, þar sem verið sé að tengja saman me göngu útjaðar Evrópu við miðju hennar. Ekki veiti af á þeim viðsjárverðu tímum sem nú ríki, og því hafa þeir ásamt félögum sínum sem munu slást í hópinn í Danmörku ákveðið að kalla hópinn sem stendur að verkefninu Fjallatengsl eða Mountains of Bonds .
Hér má sjá slóðina á vef feðalanganna:http://www.ilcamminoritrovato.blogspot.it/