Fyrstu verðlaun í píanókeppni

Alexander Smári Kristjánsson Edelstein
Alexander Smári Kristjánsson Edelstein

Alexander Smári Kristjánsson Edelstein 14 ára píanónemandi við Tónlistarskólann á Akureyri vann fyrstu verðlaun í píanókeppni Epta sem haldin var í Salnum í Kópavogi dagana 7. til 11. nóvember. Píanókeppni EPTA, er ein þekktasta tónlistakeppni í flutningi klassískrar tónlistar sem haldin er á Íslandi.  Hún var fyrst haldið árin 2000 og svo á þriggja ára fresti þaðan í frá. Keppt var í þremur flokkum, 14 ára og yngri, 18 ára og yngi og 25 ára og yngri. Alls voru 23 keppendur í flokki 14 ára og yngri þar sem Alexander var þátttakandi.  

Nýjast