Fyrsti deilibíllinn á Akureyri er tilbúinn til notkunar

Arnar Þórsson viðskiptasjóri AVIS/Zipcar, Arnþór Jónsson sölustjóri, Sverrir Guðmundsson verkefnastj…
Arnar Þórsson viðskiptasjóri AVIS/Zipcar, Arnþór Jónsson sölustjóri, Sverrir Guðmundsson verkefnastjóri landsbyggðar og Andri Teitsson formaður umhverfis og mannvirkjaráðs Akureyrarbæjar. mynd/akureyri.is

Zipcar deilibíll er kominn til Akureyrar og er tilbúinn til notkunar fyrir íbúa, starfsfólk fyrirtækja og gesti bæjarins. Deilibíllinn er staðsettur í miðbænum, á horni Skipagötu og Hofsbótar. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Akureyrarbæjar.

Þar segir að Akureyrarbær taki þátt í tilraunaverkefni um áhrif þess að innleiða deilibílaþjónustu. Verkefnið séleitt af verkfræðistofunni EFLU í samstarfi við Zipcar deilibílaleigu, Akureyrabæ, Garðabæ og Hafnarfjörð með styrk frá rannsóknarsjóði Vegagerðarinnar. 

Þjónustan virkar þannig að fólk bókar bílinn í Zipcar appinu, sækir hann og skilar aftur á sama stað.  Deilibíllinn verður aðgengilegur í að minnsta kosti sex mánuði í tilraunaskyni.

Góð viðbót við samgönguflóruna

Andri Teitsson, formaður umhverfis- og mannvirkjaráðs Akureyrarbæjar, tók formlega á móti bílnum í vikunni. „Þetta er áhugavert verkefni sem er ánægjulegt fyrir okkur að taka þátt í. Deilibíllinn eru spennandi valkostur sem bætist við fjölbreytta samgöngukosti sem fyrir eru á Akureyri. Vonandi verða viðtökur bæjarbúa svo að þessi þjónusta verði í boði til frambúðar,“ er haft eftir Andra í tilkynningunni.

„Fyrst og fremst er Zipcar umhverfisvænn kostur sem fækkar einkabílum og brúar bilið fyrir þá sem kjósa að eiga ekki bíl eða vilja jafnvel losa sig við einkabílinn en þurfa stundum bíl í snattið," segir Arnþór Jónsson sölustjóri Zipcar á Íslandi. 

Getur leyst af hólmi 13 einkabíla

„En þess má einnig geta að samkvæmt rannsóknum getur hver Zipcar tekið allt að 13 einkabíla úr umferðinni sem þá minnkar að sama skapi þörf fyrir bílastæði og eykur þá pláss fyrir græn svæði og fallegra umhverfi. Hægt er að bóka bílinn á öllum tímum sólarhrings alla daga vikunnar," segir Arnþór og bætir við að bíllinn sé opnaður með appinu í símanum og læst aftur að lokinni notkun. 

Arnþór segir að þessi þjónusta nýtist einkum þeim sem noti almenningssamgöngur, hjóli, eða labbi til vinnu og geti þá leigt bílinn í næsta nágrenni við vinnustað eða heimili. „Okkar von er að geta tekið þetta verkefni lengra og stutt þannig við fækkun einkabíla á Akureyri og aðstoðað þannig bæinn við að minka kolefnissporið. Við erum nú þegar komin í viðræður við fyrirtæki og stofnanir um að auka við framboð bíla á Akureyri í náinni framtíð. Við vonum að íbúar og fyrirtæki í nágrenni við bílinn nýti sér þennan fyrsta bíl næstu vikur og mánuði svo við getum haldið þessum fyrsta bíl áfram og bætt öðrum við í þessum fallega bæ að tilraunaverkefni loknu," segir Arnþór.


Athugasemdir

Nýjast