Fyrsti Akureyringurinn er myndarlegur drengur

Stoltir foreldrar með fyrsta Akureyringinn
Stoltir foreldrar með fyrsta Akureyringinn

Fyrsti Akureyringurinn fæddist á Sjúkrahúsinu á Akureyri að kvöldi nýársdags, 11 marka og 47 sentimetra drengur. Foreldar eru Hafdís Erla Jóhannsdóttir og Björn Þór Guðmundsson. Fæðingar á Sjúkrahúsinu á Akureyri voru samtals 474 á nýliðnu ári, en þær voru 393 árið 2011.

íbúum Akureyrar fjölgaði um 88 frá 1. desember 2011 til 1. desember 2012, samvkæmt uplýsingum frá íbúaskrá bæjarins. Íbúarnir voru 1. desember 2012 samtals 17.957 þann fyrsta desember, en á sama tíma 2011 voru íbúarnir 17.869.

Íbúatalan lækkaði nokkuð á seinni helmingi ársins, því fyrr á árinu var átjánþúsundasta Akureyringnum fagnað sérstaklega.

karleskil@vikudagur.is

Nýjast