Fyrsta skóflustungan tekin að nýrri frístundabyggð í Hálöndum

Helgi Örn sýnir Baldri á Hlíðarenda líkan af einu orlofshúsi.
Helgi Örn sýnir Baldri á Hlíðarenda líkan af einu orlofshúsi.

Baldur Halldórsson á Hlíðarenda tók í hádeginu í dag, fyrstu skóflustunguna að nýrri frístundabyggð sem SS Byggir hyggst reisa í landi Hlíðarenda við Hlíðarfjallsveg. Fjöldi fólks var á staðnum, starfsmenn SS Byggis og gestir og að lokinni skóflustungu var öllum boðið upp á grillaðar pylsur, í tilefni þessara tímamóta. Árið 2010 festi SS Byggir kaup á 28 hektara landi úr jörðinni og liggur það svæði ofan bæjarhúsa Hlíðarenda. Svæðið hefur fengið nafnið Hálönd en það var Baldur sem kom fram með hugmyndina að nafninu. Áætlanir gera ráð fyrir 100 orlofshúsum, skálum til að hýsa stærri hópa, þjónustuhúsum og hóteli. Hér er um að ræða verkefni til að minnsta kosti 10 ára, með 20-30 ársverk og er áætlaður kostnaður við uppbygginguna milljarðar króna.

Við athöfnina í dag, sagði Helgi Örn Eyþórsson verkefnastjóri SS Byggis,  m.a. frá því að eftir að fyrirtækið keypti landið hafi farið í gang umfangsmikið skipulagsferli. Breyta hafi þurft landnotkun úr landbúnaði í ferðaþjónustu. Breyta þurfi aðalskipulagi Akureyrar og deiliskipuleggja svæðið.  “Allt hefur þetta tekið tíma en nú erum við loksins komnir með leyfi til að hefja framkvæmdir. Við erum með samþykki fyrir einu húsi og framkvæmdaleyfi fyrir gatnagerð. Stefnan er að hefja jarðvegsframkvæmdir nú á sumarmánuðum. Þegar verkefnastaðan breytist í haust og við ljúkum framkvæmdum við hjúkrunarheimilið við Vestursíðu og áfangaskipti verða við Naustaskóla, verður hægt að hefja framkvæmdir við að minnsta kosti þrjú hús hér í Hálöndum,” sagði Helgi Örn. Hann minntist jafnframt á það að SS Byggir hefði átt lægsta tilboð í byggingu 5. áfanga við Háskólann á Akureyri og því væri staðan fyrir veturinn nokkuð góð.

Svæðið sem er við rætur Hlíðarfjalls, er draumastaður fyrir útivistarfólks, að mati forsvarsmanna SS Byggis. Á heimasíðu fyrirtækisins segir m.a: Hægt verður að renna sér heim að húsunum frá skíðasvæði Hlíðarfjalls flesta daga vetrarins en einnig er örstutt í aðra afþreyingu allt árið um kring. Húsin eru aðeins í um 5 km fjarlægð frá miðbæ Akureyrar.  Meðal afþreyingar á svæðinu má nefna:

·       Skíðasvæðið Hlíðarfjall, paradís skíða- og brettafólks á Íslandi

·       Akstursvæði KKA, félags torfæruhjóla- og vélsleðamanna á Akureyri

·       Fyrirhugað akstursíþróttasvæði og ökugerði Bílaklúbbs Akureyrar

·       Reiðhöll og keppnissvæði Hestamannafélagsins Léttis

·       Æfingar- og keppnisaðstaða Skotfélags Akureyrar

·       Glerárdalur og Súlur bjóða upp á endalausa möguleika fyrir göngugarpa, vélsleðafólk og aðra unnendur útivistar og náttúru

 

Nýjast