Fyrsta haustlægðin komin

Glerárgata á Akureyri í morgun.
Glerárgata á Akureyri í morgun.
Veðurstofan gerir ráð fyrir norðanátt í dag, 15-23 m/s og slyddu eða snjókomu til fjalla. Í Víkurskarði sátu bílar fastir á níunda tímanum, þannig að þeir sem þurfa að leggja land undir fót ættu að fylgjast vel með veðri og færð. Hvasst var á Akureyri í nótt, en engin alvarleg óhöpp hafa verið tilkynnt lögreglu. Í kvöld á að draga úr vindi, en Veðurstofan varar við  vindhviðum við fjöll.
 
„Það dugar ekkert annað en úlpa og lopapeysa í dag og svo auðvitað húfa. En það þýðir ekkert að gráta þetta, við búum á Íslandi,“ sagði kona í Giljhverfi á Akureyri sem hafði samband við Vikudag.“

Nýjast