Fyrirliði Þórs/KA fær kókosbollurétt á Hótel mömmu

Sjólaug og Arna Sif
Sjólaug og Arna Sif

„Ég er auðvitað stoltasta mamma bæjarins, þetta er bara búið að vera frábært,“ segir Snjólaug Helgadóttir móðir Örnu Sifjar Ásgrímsdóttur fyrirliða Þórs/KA í knattspyrnu. „Ég reyndar spáði því í vor að liðið kæmi á óvart í deildinni í sumar og það kom á daginn. Íslandsmeistari, takk fyrir.“

Snjólaug segir að Arna hafi byrjað að sparka bolta á fjórða aldursári. „Fótboltinn hefur alltaf verið hennar líf, hún æfði og spilaði til dæmis með strákunum í yngri flokkum, enda voru þá ekki margar stelpur í boltanum. Þetta gerði ekkert annað en að herða í stelpunni.“ Þær mæðgur búa saman og fyrirliðinn fékk góðar móttökur í gærkvöld er heim var komið. „Ég var náttúrulega á leiknum, en ég knúsaði hana vel og innilega heima. Ég var búin að lofa Örnu að útbúa eftirrétt ef þetta allt saman gengi eftir og við það verður auðvitað staðið og það strax í kvöld. Þetta er kókosbolluréttur, algjör orkusprengja.“

Nýjast