Fundur um raforkumál á Norðurlandi eystra
Eyþing og Orkustofnun boða til fundar um raforkumál á Norðurlandi eystra. Fundurinn verður haldinn á Hótel KEA, Akureyri 30. nóvember 2016 kl. 13:30
Erla Björk Þorgeirsdóttir verkefnisstjóri hjá Orkustofnun mun fjalla um ýmsa þætti orkumála í landshlutanum. Hliðstæðir fundir eru haldnir í öðrum landshlutum.
Efnisatriði fundarins:
•Staðan í sveitarfélögunum á Norðurlandi eystra
•Verndar og orkunýtingaráætlun
•Virkjanir á Norðurlandi eystra
•Staðan í orkumálum
•Raforkuverð
•Virkjunarkostir á Norðurlandi Eystra í þriðja áfanga verndar- og orkunýtingaráætlunar
•Fjórði áfangi verndar- og orkunýtingaráætlunar
•Vindatlas Veðurstofunnar
•Smærri virkjunarkostir