Framsóknarfólk í Norðausturkjördæmi hefur verulegar áhyggjur af stöðunni sem upp er komin í kjördæminu. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður flokksins og Höskuldur Þór Þórhallsson þingmaður vilja báðir fara fyrir framboðslista flokksins og vill hvorugur þeirra gefa eftir. Eins og staðan er í dag, virðist flest benda til þess að kosið verði á milli formannsins og þingmannsins. Kjördæmissamband flokksins hefur boðað til fundar í Mývatnssveit um miðjan mánuðinn og hafa um tvöhundruð manns rétt til að sitja fundinn. Þar verður ákveðið með hvaða hætti stillt verður upp á framboðslistann. Framsóknarfólk sem Vikudagur hefur talað við fullyrðir að fundurinn verði mjög vel sóttur, stuðningsfólk beggja mæti til að styðja sinn mann.
Framkvæmdastjórn lýsir yfir stuðningi við framkvæmdastjórann
Framkvæmdastjórn fer með umboð miðstjórnar milli miðstjórnarfunda. Stjórnin hefur nýverið rætt kröfu Höskuldar um að framkvæmdastjóri flokksins íhugi afsögn, eins og Höskuldur krafðist. Framkvæmdastjórn skipa formaður flokksins, varaformaður, ritari, formaður þingflokks og formenn SUF og LFK. Eftir umræður lýsti framkvæmdastjórnin yfir stuðningi við framkvæmdastjórann. Höskuldur segir að þessi afstaða komi ekket sérstaklega á óvart og hann segir sömuleiðis að hún veiki ekki stöðu sína innan flokksins.
Tveir fundir
Sigmundur Davíð og Höskuldur hafa fundað að minnsta kosti í tvígang á undanförnum dögum, þar sem framboðsmál hafa verið sérstaklega á dagskrá. Þessir fundur voru að mestu árangurslausir, formaðurinn og þingmaðurinn er báðir ákveðnir í að fara fyrir framboðslistanum. Það er sem sagt stál í stál í þessari sérkennilegu deilu. Ekki hefur náðst í Sigmund Davíð þátt fyrir ítrekaðar tilraunir, hann var á Akureyri i gær og ræddi við flokksfólk. Höskuldur Þór sagðist í gærkvöld hafa farið víða um kjördæmið á undanförnum dögum. Ég finn fyrir miklum stuðningi og held því algjörlega mínu striki.
karleskil@vikudagur.is