Fullkomið virðingarleysi

Hér ma sjá slóð eftir mortorhjol upp hólinn.
Hér ma sjá slóð eftir mortorhjol upp hólinn.

“Mér þykir þetta fullkomið virðingarleysi við umhverfið og ástæða til að benda þessum mönnum góðfúslega á að stunda sína íþrótt á eihverjum þeim fjölda slóða og leiða sem þegar eru fyrir hendi á þessu svæði,” segir Jón Ragnarsson kaupmaður í JMJ, um utanvegaakstur mótorkrossara sem spændu upp brekkur við sumabústað hans í Fnjóskadal um helgina.  Jón segir að þrír mótorhljólamenn hafi komið með miklum hávaða og fóru upp svokallaðan Jónshól við Selgil í Fnjóskadal, ekki langt þar frá sem fyrirhuguð Vaðlaheiðagöng eiga að vera. Hann segir menn hafa verið að planta lerki við rætur hólsins og bera áburð á hólinn sjálfan og reyna að vernda hann, en svo komi menn í algeru hugsunarleysi og spóli þetta upp að gamni sínu. “Ekki nóg með að að þeir hafi farið þarna upp á leið sinni inn í Lundskóg heldur gerðu þeir sér lítið fyrir og tóku rispu á brekkunni í bakaleiðinni líka,” segir Jón. Hann tekur fram að íþróttir af þessu tagi eigi fullan rétt á sér en menn verði að ástunda sitt sport í sátt við umhverfið.

Nýjast