Færeyski markvörðurinn Frida Petersen var valin besti leikmaður KA/Þórs fyrir nýafstaðinn vetur í N1-deild kvenna í handknattleik í lokahófi félagsins sl. föstudag. Valið kemur lítið á óvart þar sem Frida átti hreint frábæran vetur á milli stanganna. Hún verður hins vegar ekki áfram með norðanliðinu og leikur líklega í heimalandi sínu næsta vetur og er það mikill missir fyrir KA/Þór. Ásdís Sigurðardóttir var valin besti sóknarmaðurinn liðsins í vetur í lokahófinu, Martha Hermannsdóttir besti varnarmaðurinn og Kolbrún Gígja Einarsdóttir efnilegasti leikmaðurinn.