Framsýn gefur bekk við göngustíg í Mývatnssveit

Félag eldri Mývetninga hefur undanfarið unnið að því að koma upp bekkjum við hjólreiða- og göngustíg…
Félag eldri Mývetninga hefur undanfarið unnið að því að koma upp bekkjum við hjólreiða- og göngustíg sem verið er að leggja umhverfis Mývatn, Framsýn lagði lið og gaf bekk

Framsýn hefur í gegnum tíðina stutt við íþrótta- og menningarstarf á félagssvæðinu með því að leggja fjármagn í ýmis áhugaverð  verkefni sem koma samfélaginu til góða á einn eða annan hátt. Eitt þeirra verkefna er í gangi þessa dagana og tengist Mývatnssveitinni fögru segir á vef Framsýnar.

Félag eldri Mývetninga hefur undanfarið unnið að því að koma upp bekkjum við hjólreiða- og göngustíg sem verið er að leggja umhverfis Mývatn. Verkefnið er unnið í samvinnu við Þingeyjarsveit og Vegagerðina. Eru bekkirnir frá Steinsmiðju Akureyrar, þeir eru algjörlega viðhaldsfríir, úr granít og í náttúrulitum sem falla vel að umhverfinu. Kveikjan að hugmyndinni er sú að gestir og gangandi sem leið eiga um stíginn hafi möguleika á að tylla sér niður og hvíla lúin bein og njóta þeirrar einstöku náttúruperlu sem Mývatnssveitin sannarlega er. Félagið hefur þegar keypt tvo bekki og hefur óskað eftir stuðningi við verkefnið og höfðar þar sérstaklega til fyrirtækja með starfsemi í Mývatnssveit; en einnig félagasamtaka og einstaklinga.

Á aðalfundi Framsýnar var samþykkt samhljóða að leggja þessu verðuga verkefni lið með því að fjárfesta í einum bekk.

Frá þessu segir á heimasíðu Framsýnar  


Athugasemdir

Nýjast