Höskuldur Þór Þórhallsson þingmaður Framsóknarflokksins í Norðausturkjördæmi keppti um helgina við Sigmund Davíð Gunnlaugsson formann um fyrsta sætið á framboðslista flokksins í Norðausturkjördæmi.Formaðurinn sigraði, en Höskuldur verður í öðru sæti listans.
Höskuldur Þór segir að flokkurinn sé orðinn of hægrisinnaður.
Ég held að það sé hollt hverjum stjórnmálaflokki að líta í eigin barm. Við höfum að mínu mati ekki verið að mælast nógu hátt í skoðanakönnunum og þurfum að skoða hverju það sætir. Ég held því miður að við höfum verið of nálægt Sjálfstæðisflokknum í þeim málum sem hafa verið mjög til umræðu á undanförnum misserum. Ég er þeirrar skoðunar að Framsóknarflokkurinn eigi frekar að líta til vinstri en hægri, enda höfum við í þessu kjördæmi (Norðausturkjördæmi), yfirleitt snúið okkur á móti Sjálfstæðisflokknum.
Ertu að segja að þú útilokir samstarf við Sjálfstæðisflokkinn í hugsanlegri ríkisstjórn ?
Við eigum að halda þeim möguleika opnum, ég er ekki með þessum orðum að útiloka slíkt samstarf. Það eru miklar breytingar hjá vinstri flokkunum, sömu sögu er reyndar að segja um Sjálfstæðisflokkinn. Mér sýnist að flestir flokkar séu að færa sig inn á miðjuna. Ég vara við einkavæðingarstefnu eins og Sjálfstæðisflokkurinn talar fyrir, segir Höskuldur Þór.
karleskil@vikudagur.is