Framkvæmt fyrir 4,4 milljarða á árinu 2020

Töluvert af framkvæmdum er framundan hjá Akureyrarbæ, m.a. þjónustukjarni í Klettaborg sem verður te…
Töluvert af framkvæmdum er framundan hjá Akureyrarbæ, m.a. þjónustukjarni í Klettaborg sem verður tekin í notkun um mitt árið.

Fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar fyrir árið 2020 ásamt þriggja ára áætlun 2021-2023 var samþykkt á fundi bæjarstjórnar fyrir áramót. Samkvæmt áætluninni er gert ráð fyrir jákvæðri afkomu af rekstri A- og B-hluta á næsta ári um 106 milljónir króna samanlagt. Bæjarstjórn samþykkti jafnframt óbreytta álagningarprósentu fasteignaskatts, það er 0,33% af fasteignamati íbúðarhúsnæðis og 1,6% af fasteignamati annars húsnæðis. Einnig samþykkti bæjarstjórn óbreytta útsvarsprósentu, 14,52%, auk breytinga á gjaldskrá sem gerir almennt ráð fyrir 2,5% hækkun á árinu. Tekjumörk afsláttar elli- og örorkulífeyrisþega voru hækkuð um 10%.

Fræðslu-og uppeldismál fyrirferðarmikil

Á árinu 2020 er gert ráð fyrir framkvæmdum á vegum sveitarfélagsins fyrir tæplega 4,4 milljarða króna. Fram kemur á vef Akureyrarbæjar að fræðslu- og uppeldismál séu sérstaklega fyrirferðarmikil í framkvæmdayfirliti á árinu. Gert er samtals ráð fyrir 873 milljónum króna vegna endurbóta á Glerárskóla, byggingar leikskóla við hlið Glerárskóla, undirbúningsvinnu vegna fyrirhugaðra endurbóta á Lundarskóla ásamt smærri framkvæmdum. Hjá eignasjóði gatna eru áætlaðar 784 milljónir króna vegna nýbygginga gatna, malbikunar, endurbygginga og viðhalds. Ríflega helmingur af kostnaði við framkvæmdir næsta árs fellur undir fyrirtæki í B-hluta. 

Áætlað er að verja 1,5 milljörðum í framkvæmdir á vegum Norðurorku, það er einkum vegna heita- og kaldavatnskerfis og fráveitu. Gert er ráð fyrir 245 milljónum króna í félagslegar íbúðir og 130 milljónum vegna þjónustukjarna í Klettaborg sem verður tekinn í notkun um mitt næsta ár. Hjá Hafnasamlagi Norðurlands eru áætlaðar 436 milljónir króna í hafnarframkvæmdir, segir á vef Akureyrarbæjar.

Alls er gert ráð fyrir 150 milljónum kr. í nýtt þjónustuhús á siglingasvæði Nökkva; 75 milljónum kr. á þessu ári og 75 milljónum kr. á árinu 2021. Hefja á framkvæmdir á árinu á viðbyggingu við Lögmannshlíð þar sem gert er ráð fyrir 60 íbúðum fyrir aldraða. Fara 20 milljónir í framkvæmdir á árinu en áætlaðar eru alls 380 milljónir í verkefnið á árunum 2020-2023. Þá er gert ráð fyrir 10 milljónum kr. í frágang brekku og lóðar við Listasafn Akureyrar.


Athugasemdir

Nýjast