Framkvæmdir við viðbyggingu Hrafnagilsskóla ganga vel

Mikil eftirvænting er í Eyjafjarðarsveit vegna nýbyggingar við Hrafnagilsskóla.  Mynd á vef Eyjafjar…
Mikil eftirvænting er í Eyjafjarðarsveit vegna nýbyggingar við Hrafnagilsskóla. Mynd á vef Eyjafjarðarsveitar

Mikil eftirvænting hefur verið í Eyjafjarðarsveit vegna nýbyggingar við Hrafnagilsskóla. Sveitarstjórn hefur unnið skipulega að undirbúningi verksins í nokkur ár.

Bæði hvað varðar hönnun byggingarinnar en ekki síst með aðhaldi á útgjaldahliðinni til þess að auka handbært fé sveitarfélagsins fyrir þessari stóru og miklu framkvæmd að því er segir í frétt á vef Eyjafjarðarsveitar.

Byggingin verður mikil bylting fyrir skólaumhverfi Eyjafjarðarsveitar og mun starfsumhverfi leikskólastarfsmanna og nemenda strax á næsta ári taka miklum og jákvæðum breytingum. „Sérlega spennandi verður að taka þátt í undirbúningi starfseminnar út frá þeim fjölmörgu og fjölbreyttu nýju kostum sem ný bygging mun bjóða uppá fyrir starfsemina.“


Athugasemdir

Nýjast