Framkvæmdir hefjast í sumar

Alþingi samþykkti fyrr  í kvöld frumvarp fjármálaráðherra um heilild til að lána Vaðlaheiðargöngum hf. allt að 8,7 milljarða til gerðar ganganna. 29 þingmenn samþykktu fjármögnunina, 13 voru á móti og 5 sátu hjá. Þverpólitískur ágreiningur var um málið líkt og við atkvæðagreiðaluna eftir aðra umræðu í gær. Framkvæmdir við göngin munu að öllum líkindum hefjast strax í sumar en tafir sem orðið hafa á málinu munu hafa talsverðan kostnað í för með sér. Meira um málið í prentúgáfu Vikudags í dag.

Nýjast