Framkvæmdir hafnar við Dalsbraut

Framkvæmdir hófust í morgun við Dalsbraut og verður þessi áfangi frá Miðhúsabraut að Skógarlundi. Ekki er hægt að fara í að leggja götuna alla leið að Þingvallastræði vegna úrskurðar um að breyta þurfi skipulagi við KA heimilið og samræma deiliskipulag og aðalskipulag. Að sögn Guðmundar Gunnarssonar hjá GV verktökum sem er framkvæmdaaðili, er búist við að verklok þessa áfanga verði í september. Aðspurður segir hann óvíst með framhaldið, það muni ráðast af úrlausn skipulagsmálanna. Hins vegar segir hann að hugsanlega væri hægt að halda verkinu áfram að einhverju leyti í það minnsta í vetur ef búið veði að afgreiða þessi skipulagmál. Að öðrum kosti verði væntanleg að byrja á því næsta vor.  Oddur Helgi Halldórsson formaður framkvæmdaráðs óskaði verktökum góðs gengis og kvaðst sannfærður um að þegar Dalsbrautin væri komin myndu deilur um hana, sem einkennt hefðu umræðurnar síðustu misseri, leggjast af.

 

Nýjast