Framkvæmdir á fullu hjá Silfurstjörnunni í Öxarfirði

Nýju kerin eru stór, enda mun framleiðslan tvöfaldast.                Mynd samherji.is
Nýju kerin eru stór, enda mun framleiðslan tvöfaldast. Mynd samherji.is

Framkvæmdir við stækkun lax og bleikju landeldisstöðvar Fiskeldis Samherja í Öxarfirði eru komnar á fulla ferð.  Eins og fram hefur komið er stefnt að þvi að tvöfalda eldisrými og framleiðslu þannig að stöðin skili af sér  u.þ.b  3000 tonnum á ári . Frá þessu er greint á heimasíðu Samherja þar sem skoða má fleiri myndir.

Tvöfalda á eldisrými og framleiðslu, þannig að hún verði um þrjú þúsund tonn á ári.  Byrjað er að byggja fyrstu eldiskerinn en þau  verða  fimm og  helmingi stærri en þau sem fyrir eru, sannarlega ekki nein smásmíði þar á ferð.

,,Við stefnum á taka fyrsta kerið í notkun í lok ársins, eins og staðan er í dag getum við sagt að allt gangi samkvæmt áætlun. Hin kerin verða svo virkjuð á eins til tveggja mánaða millibili. Hérna á svæðinu eru starfsmenn nokkurra verktakafyrirtækja og stórvirkar vinnuvélar eru áberandi á svæðinu. Undirbúningurinn tók náttúrulega nokkurn tíma, svo sem vinna við skipulagsmál, leyfisumsóknir og fleira. Góður undirbúningur skiptir sköpum og þá verður sjálf uppbyggingin hnitmiðaðri en ella,“ segir Arnar Freyr Jónsson rekstrarstjóri Fiskeldis Samherja í Öxarfirði.

Hagkvæmari rekstur

 Eins og fyrr segir tvöfaldast framleiðslan og segja má að stækkunin sé nokkurs konar undanfari stórrar landeldisstöðvar Samherja Fiskeldis á Reykjanesi.

 „Já, við ætlum að nýta okkur þá reynslu sem við öðlumst hérna fyrir norðan þegar uppbyggingin hefst fyrir alvöru fyrir sunnan. Auk þess var kominn tími á ýmsar uppfærslur í starfseminni, enda Silfurstjarnan á margan hátt komin nokkuð til ára sinna. Eftir stækkun verður reksturinn hagkvæmari.“

Líflegt í matsalnum

„Þessar framkvæmdir lífga sannarlega upp á allt saman hérna og stækkunin mun klárlega efla samfélagið í Norðurþingi, enda er Silfurstjarnan stærsti vinnuveitandinn á svæðinu á eftir sjálfu sveitarfélaginu. Það er gaman og spennandi að sjá þetta verða að veruleika. Núna er sem sagt farið að móta fyrir kerjunum og það er viss áfangi. Ég giska á að starfsmenn hérna séu um það bil helmingi fleiri en venjulega, þannig að það er líf og fjör þegar allir koma saman í matsalnum,“ segir Arnar Freyr Jónsson.

 

 

 


Athugasemdir

Nýjast