Gísli Tryggvason talsmaður neytenda vill leiða framboðslista Dögunar í Norðausturkjördæmi.
Mér er efst í huga að rétta þann halla sem lengi hefur verið á réttindum og skyldum landsbyggðar og borgríkisins á SV-horninu og jafna þann aðstöðumun sem er milli fólks eftir búsetu, segir Gísli.
Á næstunni er fyrhugað að stofna kjördæmaráð Dögunar í kjördæminu, sem meðal annars er ætlað að sjá um framboðsmál samtakanna.
Gísli er fæddur og uppalinn á Akureyri.
karleskil@vikudagur.is