Framboðslisti Framsóknar í NA kjördæmi verður ákveðinn á tvöföldu kjördæmisþingi

Höskuldur Þór fylgist með umræðum
Höskuldur Þór fylgist með umræðum

Kjördæmisþing Framsóknarflokksins í Norðausturkjördæmi var haldið í Mývatnssveit í dag. Þar var meðal annars ákveðið með hvaða hætti skuli velja frambjóðendur á framboðslista flokksins við komandi alþigiskosningar. Stuðningsmenn Höskuldar Þórs Þórhallssonar alþingismanns vildu flestir efna til lokaðs prókjörs, en stuðningsmenn Sigmundar Daðvíðs Gunnlaugssonar formanns flokksins vildu ákveða framboðslistann á tvöföldu kjördæmisþingi. Niðurstaðan varð tvöfalt kjördæmisþing, 115 kusu þá leið í leynilegri atvkæðagreiðslu. 48 vildu efna til lokaðs prófkjörs. 2 seðlar voru ógildir. Tvöfalt kjördæmisþing verður haldið 1. desember í Mývatnssveit.

Spenna á þinginu

Ljóst er að mikil spenna ríkti fyrir þingið, hljóðupptökur fjölmiðlafólks voru til dæmis takmarkaðar. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson segist sáttur við niðurstöðu þingsins. Höskuldur Þór segist heldur hafa viljað prófkjör, það væri lýðræðislegri leið.

karleskil@vikudagur.is

 

Nýjast