Frábær tilfinning

Það þótti ástæða til að pússa skóinn hans Sigurðar Marinós eftir að hann skorað þriðja markið.
Það þótti ástæða til að pússa skóinn hans Sigurðar Marinós eftir að hann skorað þriðja markið.

“Tilfinningin er frábær og þetta er í raun lyginni líkast,” sagði Sigurður Marinó Kristjánsson leikmaður Þórs, sem var hetjan í öruggum sigri liðsins á írska liðinu Bohemian FC í forkeppni Evrópudeildarinnar í knattspyrnu á Þórsvellinum í kvöld. Sigurður skoraði þrennu í leiknum og hann tók einnig hornspyrnuna þegar Írarnir skoruðu sjálfsmark í byrjun síðari hálfleiks. “Við vorum fullir sjálfstrausts eftir markalaust jafntefli úti. Við fengum að vísu á okkur klaufalegt mark í kvöld en svo gáfum við í og rúlluðum yfir þá. Þeir áttu aldrei möguleika eftir það, við fengum fjölmörg færi til viðbótar en þeir ekki neitt, sagði Sigurður en viðurkenndi að sigurinn hefði verið stærri en menn áttu von á.

Þór mætir tékkneska liðinu Mladá Boleslav í 2. umferðinni og fara leikirnir fram 19. og 26. júlí. Sigurður sagðist ekkert vita um tékkneska liðið en hann er þó hvergi banginn. “Mér líst vel á þessa viðureign, þetta er sannkallað ævintýri og við erum fullir sjálfstrausts. Eftir þennan sigur eigum við möguleika í hvaða lið sem er.”

Þórshjartað vaknaði

Hreinn Hringsson aðstoðarþjálfari Þórs var að vonum ánægður eftir leikinn líkt og aðrir Þórsarar. “Þetta er frábær tilfinning en sigurinn er stærri en ég átti von á. Þriðja markið sem Írarnir fengu á sig í byrjun seinni hálfleiks var kjaftshögg fyrir þá. Eftir það litum við ekki til baka og ég sá þarna á vellinum sama gamla Þórsliðið og þegar við fórum upp í úrvalsdeild. Við erum búnir að bíða eftir því lengi að hjartað vaknaði, það gerðist svo sannarlega í kvöld og þetta er bara ævintýri,” sagði Hreinn.

Hann sagði að það hafi aldrei verið spurning um það að Þór gæti unnið þetta írska lið, eftir viðureignina á Írlandi. “Það sást líka langar leiðir á Írlandi að þeir áttu ekki von á því að lenda í vandræðum með eitthvað 1. deildar lið frá Íslandi.” Annað kom á daginn.

Nýjast