Hafdís Sigurðardóttir frjálsíþróttakona úr UFA stóð sig frábærlega á Gautaborgarleikunum, heimsleikum unglinga um helgina. Hún sigraði í 400 m hlaup kvenna, á sínum besta tíma, 54,16 sek. hún átti áður 55,42 sek. og er þetta besti tími sem náðst hefur í 8 ár. Þess má geta að Íslandsmet Guðrúnar Arnardóttur frá 1997 er 52,83 sek. Hafdís vann einnig 200 m hlaupið með yfirburðum, hljóp á tímanum 24,12 sek. en átti áður best 24,66 sek. Þessir tímar Hafdísar í 400 m og 200 m hlaupum eru 4. bestu tímar íslenskrar konu frá upphafi. Í 100m hlaupi hljóp hún á 12,05 sek. í undanúrslitunum og á 12,10 sek. í úrslitunum og varð í 2. sæti. Hún átti áður best 12,15 sek. Þessir tímar eru bestu tímar ársins í þessum hlaupum. Hafdís keppti einnig í langstökki og hafnaði þar í 4. sæti en hún stökk 5,98 m. Á heimasíðu UFA, segir að með þessum árangri sé Hafdís komin í fremstu röð íslensks frjálsíþróttafólks. Fyrir árangur sinn í 400 m hlaupinu hlýtur hún 1058 stig samkv. IAAF og árangurinn í 200 m hlaupinu gefur henni 1048 stig. Alls eru þátttakendur á Gautaborgarleikunum um 3.500 frá 20 löndum. Nokkur fjöldi Íslendinga tók þátt í leikunum að venju.