Dagurinn hjá nemendum í sjötta bekk Brekkuskóla á Akureyri var skemmtilegur. Hópurinn fór með Húna II út á Eyjafjörð til að kynnast fiskveium og hafríkinu. Verkefnið nefnist Frá öngli til maga, markmiðið er að auka áhuga og skilning þátttakenda á lífríki hafsins, sjómennsku og hollustu sjávarfangs. Þorgeir Baldursson ljósmyndari var á ferðinni í dag og tók mynd af hópnum er í land var komið.