Föstudagsfreistingar Tónlistarfélags Akureyrar verða í menningarhúsinu Hofi á morgun klukkan 12:00
Það verða þeir Ívar Helgason og Agnar Már Magnússon sem flytja dagskrá með yfirskriftinni
Krakkar Krákur og Kartöflugarðar og eru þetta perlur úr þekktum teiknimyndum.
Á meðan tónleikum stendur verður boðið upp á súpu, brauð og kaffi frá 1862 Nordic Bistro.
Miðaverð kr. 2000
Eldri borgarar greiða kr. 1500
Frítt fyrir börn
Þetta eru tónleikar fyrir alla fjölskylduna.