Forsölutilboð á viðburði Hofs

Boðið er upp á 20% afslátt af miðaverði á viðburði sem verða á dagskrá í vetur í Menningarhúsinu Hofi. Sala á sérstöku forsölutilboð hefst í dag og stendur til 7. september næstkomandi. Gestir geta valið úr völdum viðburðum, eins marga og þeir kjósa og sett þannig saman sína eigin menningardagskrá. Fjölbreytt úrval viðburða eru í forsölu, má þar nefna tónleika Sinfóníuhljómsveitar Íslands, leiksýninguna Á sama tíma að ári, Af fingrum fram með Jóni Ólafs, Gói og eldfærin og útgáfutónleikar Skálmaldar.

Nýjast