14. nóvember, 2012 - 15:19
Fréttir
Samstöðutónleikarnir verða í Hofi
Fjöldi listamanna kemur fram á sérstakri samstöðuhátíð og styrktartónleikum í menningarhúsinu Hofi á Akureyri, sunnudaginn 18. nóvember næstkomandi, kl. 16.00. Allur ágóði tónleikanna mun renna í styrktarsöfnun sem staðið hefur yfir undanfarnar vikur. Söfninun er fyrir þá bændur sem urðu fyrir áföllum í óveðrinu er gekk yfir Norðurland í september síðastliðnum.
Þótt tónleikarnir séu af alvarlegu tilefni er ekki síður ástæða til þess að hittast og fagna saman segir Guðni Ágústsson, einn af forvígismönnum söfnunarinnar. Söfnunin hefur gengið vel en betur má ef duga skal. Tónleikarnir verða hátíðlegir, Forsetinn mun flytja ávarp og fjölda stórkostlegra listamanna mun gleðja okkur og snerta streng í hörpu allra þeirra sem á munu hlýða. Ég hvet fólk til þess að tryggja sér miða hið fyrsta.
Á tónleikunum koma fram þau Kristján Jóhannsson, Sigrún Hjálmtýsdóttir, Valgerður Guðrún Guðnadóttir, Gissur Páll Gissurarson, Jón Svavar Jósefsson, Unnur Helga Möller, Hörn Hrafnsdóttir, Rósalind Gísladóttir, Guðrún Dalía Salómonsdóttir Örn Viðar Birgisson, Valmar Väljaots, Anna Guðný Guðmundsdóttir. Allir listamenn gefa vinnu sína til stuðnings verkefninu.
Heiðursgestir tónleikanna eru forseti Íslands hr. Ólafur Ragnar Grímsson og frú Dorritt Moussaeff. ?Forsetinn mun flytja ávarp við þetta tækifæri. Miðasala fer fram í Hofi í síma 450 1000 eða á vefsíðunni
menningarhus.is. Aðgagnseyrir er 3000 kr. Þeir sem vilja leggja bændum lið er auk þess bent á söfnunarreikning nr. 0161-15-380370, kt. 630885-1409, í Landsbankanum á Sauðárkróki.