Forréttindi að hafa tækifæri til að starfa fyrir félagið

„Þessi dagur er mér mjög kær, það má segja að hann veiti mér tvöfalda ánægju“ segir Hrefna G. Torfadóttir formaður Knattspyrnufélags Akureyrar, KA. Félagið fagnaði 85 ára afmæli sínu á þriðjudag, 8. janúar, var stofnað þann dag árið 1928.  Fyrir tíu árum þegar haldið var með pompi og prakt upp á 75 ára afmæli KA eignuðust Hrefna og eiginmaður hennar, Magnús Gauti Gautason sitt fyrsta barnabarn sem fékk nafn ömmu sinnar, heitir Hrefna Lily. Hún býr með foreldrum sínum í Svíþjóð en er engu að síður gallharður stuðningsmaður KA og sækir fótboltaæfingar þegar hún heimsækir afa og ömmu á sumrin.

Hrefna hefur gengt starfi formanns KA undanfarin ár, en hún hefur átt samleið með félaginu um fjögurra áratuga skeið, gekk til liðs við félagið barn að aldri, æfði handbolta í fyrstu en segist einkum hafa sinnt margs konar stjórnunar- og sjálfboðaliðastörfum fyrir félagið. Þá stóð Magnús Gauti vaktina í markinu hjá KA í handboltanum í 18 ár og fylgdist Hrefna og börnin að sjálfsögðu með hverjum heimaleik í Skemmunni sem þá var og hét.

Síungt og engin ellimerki

„Ég er stolt af því að vera hluti af þessu stóra og öfluga íþróttafélagi og afskaplega þakklát fyrir að hafa kynnst öllu því góða fólki sem sameiginlega stendur á bak við það og hefur í áranna rás gert það að því sterka félagi sem það er á þessum tímamótum,“ segir Hrefna. Afmælisbarnið sé síungt og á því engin ellimerki að sjá.

 „Félagið á sér langa sögu og í því býr mikill kraftur,“ segir hún. „Það voru 12 ungir framsæknir piltar sem tóku sig saman og ákváðu að stofna félag til að spila knattspyrnu í og minnumst við þeirra með þakklæti og virðingu.“

Nánar er rætt við Hrefnu í prentútgáfu Vikudags.

Nýjast