Foreldrar funda vegna fíkniefnaneyslu

Kennslurjóðrið við Síðuskóla.
Kennslurjóðrið við Síðuskóla.

„Við erum skelkuð yfir þessu,“ segir Heimir Eggerz Jóhannsson, faðir þriggja barna í Síðuskóla og formaður foreldrafélags skólans. Eins og Vikudagur greindi nýlega frá hefur kennslurjóður skammt frá Síðuskóla breyst í fíkniefnabæli, en svæðið var hugsað sem útikennslustofa.

Foreldrar í Síðuskóla eru uggandi og á aðalfundi félagsins í kvöld verður meðal annars rætt um hvernig hægt sé að bregðast við þessu. „Til þess að takast á við þennan vanda þurfum við að standa saman,“ segir Heimir.

throstur@vikudagur.is

Nánar verður fjallað um málið í prentútgáfu Vikudags á morgun.

 

Nýjast