Um klukkan hálf eitt í dag var tilkynnt um að lítil flugvél hefði misst afl á flugi rétt sunnan við Akureyri og um borð væru tveir menn. Skömmu síðar var tilkynnt að flugvélin væri lent en hún hefði þurft að lenda á Eyjafjarðarbraut vestari, rétt sunnan við Hrafnagil. Flugkennari og flugnemi voru um borð og sluppu þeir ómeiddir. Ekki er talið að flugvélin sé mikið skemmd. Lögreglan á Norðurlandi eystra er á vettvangi og einnig er von á aðilum frá rannsóknarnefnd samgönguslysa. Þetta kemur fram á Facebook síðu lögreglunnar á Norðurlandi eystra
Ekki liggja fyrir nánari upplýsingar að svo stöddu.