Krabbameinsfélag Akureyrar og nágrennis fékk á dögunum ansi skemmtilegan styrk, en nemendur við Hlíðarskóla á Akureyri ákváðu að styrkja félagið í árlegu áheitahlaupi sem er partur af þemadögum skólans.
Nemendurnir hlupu eins og fætur toguðu, það gekk (og hljóp) eins og í sögu!
Alls söfnuðust 122.000 krónur sem nemendur afhentu félaginu.
Við þökkum þessum glæsilegu krökkum kærlega fyrir styrkinn og metnaðinn í þessu flotta verkefni.
Segir i tilkynningu frá KAON

Maron Björnsson stjórnarmaður KAON til vinstri og Valdimar Heiðar Valsson skólastjóri Hlíðarskóla til hægri.

Krakkarnir við upphaf hlaupsins.