Fleiri gestir en í fyrra

Mynd: Þórhallur Jónsson.
Mynd: Þórhallur Jónsson.

Töluverður fjöldi gesta sóttu fjölskylduhátíðina Eina með öllu heim á Akureyri um liðna helgi og fór að mestu leyti vel fram. Pétur Guðjónsson, talsmaður hátíðarinnar, segir erfitt að segja til um fjölda gesta en hans tilfinning sé sú að fleiri gestir hafa verið í ár en í fyrra. „Eina talan sem ég get gefið upp er að á Sparitónleikunum á sunnudagskvöldið voru tíu þúsund manns sem er töluvert meira en í fyrra,“ segir Pétur. „Annars erum við brosandi hringinn eftir þessa helgi.“

Þrátt fyrir að hátíðin hafi gengið vel var mikill erill hjá lögreglunni á Akureyri og var eitthvað um pústra og fíkniefnamisferli. Engar alvarlegar uppákomur voru að sögn lögreglu og engar kærur borist ennþá.

Hins vegar var ráðist á tvo lögregluþjóna aðfaranótt laugardagsins er þeir ætluðu að loka Púlstofunni sem er til húsa í gamla Allanum en staðurinn hafði ekki leyfi til þess að hafa opið lengur yfir nóttina.

Nýjast