Björn Þorláksson ritstjóri Akureyri-vikublaðs flytur erindi á félagsvísindatorgi Háskólans á Akureyri í dag undir yfirskriftinni Fjölmiðlun forréttindastéttanna - Gárur í annars svona fremur kyrrlátu og kózý norðri erum við bara öll krútt eða hvað?
Í erindinu spyr Björn spurninga um þróun fjölmiðlunar, ekki síst á Norðurlandi sl. ár og lýsir þeim vanda sem m.a. hefur skapast í kjölfar þess að almenningur virðist í seinni tíð síður fús til að borga fyrir fréttir og fréttaþjónustu, sem veikir umboð blaðamanna til sjálfstæðra efnistaka. Björn gerir átaksefnum í fréttum skil og dulinni sölumennsku innan fjölmiðlageirans. Hann byggir erindi sitt annars vegar að hluta á meistaranámi sínu í blaðamennsku við Háskóla Íslands en hins vegar á reynslu sinni sem blaða- og fréttamaður, ekki síst sem ritstjóri Akureyrar vikublaðs sl. þrjú misseri.
Torgið fer fram í stofu M102 og hefst kl. 12:00.