Fjöldi himbrima hefur tvöfaldast frá 2011

Himbrimi (fræðiheiti: Gavia immer). Mynd/ Wikipedia
Himbrimi (fræðiheiti: Gavia immer). Mynd/ Wikipedia

Gaumur, sjálfbærniverkefnið á Norðausturlandi hefur uppfært gögn um fuglalíf  á vöktunarsvæði Gaums. Uppfærslan nær til vetrarfuglatalningar 2020 og vatnafuglatalningar 2021 á öðrum svæðum en á og við Mývatn. Helstu tíðindin út talningum eru þau að fjöldi himbrima hefur tvöfaldast síðan árið 2011.

Vetrarfuglatalning fer fram undir stjórn Náttúrufræðistofnunar. Vetrarfuglatalningin er langtíma vöktunarverkefni sem hefur staðið frá árinu 1952 og er eitt lengsta samfellda vöktunarverkefni á landinu skv. upplýsingum á vef Náttúrfræðistofnunar. Talningin byggir á þátttöku sjálfboðaliða og fer fram í kringum áramót ár hvert.

Vatnafuglar eru taldir tvisvar á sumri á tilteknum svæðum. Náttúrustofa Norðausturlands sér um talningu utan Mývatns, Laxár, Svartár og svartárvatns. Markmiðið er að fylgjast með þróun vatnafuglastofna. Fylgst er með vatnafuglastofnum í Ljósavatnsskarði, Reykjadal og Aðaldal á vöktunarsvæði Gaums. 

Helstu breytingar varðandi vetrarfugla er að meira var af hávellu, æðarfugli, sendlingi og snjótitlingi árið 2020 en 2019 en þó ekki meira en oft áður á vöktunartíma Gaums. 

Varðandi vatnafugla er helst að sjá að himbrimum virðist vera að fjölga á svæðinu, ekki bara á milli ára heldur einnig yfir tímabilið sem Gaumur hefur fylgst með. Himbrimar hafa verið á bilinu 8-11 lengst af en á árinu 2021 voru þeir 17 eða tvöfalt fleiri en árið 2011.

Vatnafuglar utan Mývatns 

Sjálfbærniverkefnið á Norðausturlandi er vöktunarverkefni þar sem fylgst er með þróun mála á sviði samfélags, umhverfis og efnahags á svæðinu frá Vaðlaheiði í vestri til og með Tjörneshreppi í austri.


Athugasemdir

Nýjast