Fjölbreytt vetrardagskrá í Hofi

Menningarhúsið Hof.
Menningarhúsið Hof.

Menningarhúsið Hof heldur uppá tveggja ára starfsafmæli sitt í lok ágúst og afmælið markar um leið upphafið að þriðja starfsári hússins. Aðsókn á viðburði fyrstu tvö árin hefur farið fram úr björtustu vonum og hafa þeir verið vel sóttir bæði af heimamönnum og gestum víðsvegar að af landinu. Vetrardagskrá Hofs var kynnt fyrr í vikunni, en fjölbreytt dagskrá er í boði þar sem allar listgreinar koma við sögu.

 Auk fjölmargra tónleika, leiksýninga og sjónlistasýninga verður útvarpsþátturinn Gestir út um allt áfram sendur beint út á Rás 2 frá Hamraborg og á meðal nýjunga í vetrardagskránni eru viðburðir sem tengjast ritlist og bókmenntum sem og jóladagatal í desember. Vetrardagskráin hefst með afmælisvöku Akureyrar í næstu viku, en meðal viðburða sem framundan eru má nefna að hljómsveitin Nýdönsk heldur upp á 25 ára afmæli sitt með tónleikum í næsta mánuði og þá verða tónleikar til heiðurs Freddy Mercury. 

Hvanndalsbræður halda upp á 10 ára afmæli sitt í október, Gissur Páll Gissurarson tenórsöngvari og Árni Heiðar Karlsson leiða saman hesta sína með flutningi á einsöngslögum og í byrjun nóvember heldur Friðrik Ómar útgáfutónleika í Hamraborg. Karlakór Akureyrar-Geysir fagnar 90 ára afmæli sínu með tónleikum og á degi íslenskrar tungu heldur Kór Fjarðarbyggðar ásamt gestum tónleika með yfirskriftinni Óma Íslandslög.

Þá verður Bubbi Morthens með árlega Þorláksmessutónleika þann 21. desember og Jón Ólafsson verður með þrenna tónleika úr sinni vinsælu tónleikaröð Af fingrum fram. Af leiksýningum sem í boði verða má nefna Tengdó, Gói og baunagrasið og Gói og Eldfærin. Dagskrána í heild sinni fyrir veturinn má nálgast á www.menningarhus.is.

Nýjast