Fjölbreytt dagskrá í Háskólanum á Akureyr 1. desember

Háskólinn á Akureyri
Háskólinn á Akureyri

Venju samkvæmt verður boðið upp á viðamikla dagskrá í Háskólanum á Akureyri þann 1. desember. Dagskráin hefst á málþingi sem er tileinkað nýlegri þjóðaratkvæðagreiðslu um frumvarp Stjórnlagaráðs að nýrri stjórnarskrá og hvernig niðurstaða hennar og framhald vinnunnar snúa að landsbyggðinni. Að því loknu hefst hátíðardagskrá við Íslandsklukku.



Dagskrá dagsins:
Kl. 10:30 – 13:00 Ný stjórnarskrá – lýðræðishalli landsbyggðanna? Málþing í stofu M102:

  • Kl. 10:30 Setning: Stefán B. Sigurðsson rektor
  • Kl. 10:40 Steingrímur J. Sigfússon atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra
  • Kl. 10:55 Aðalheiður Ámundadóttir meistaranemi í lögfræði við HA: Lýðræði og mannréttindi
  • Kl. 11:15 Grétar Þór Eyþórsson prófessor við HA: Atkvæðavægi og uppbót landsbyggðarinnar.
  • Kl. 11:35 Þóroddur Bjarnason prófessor við HA: Stjórnarskráin og ofríki meirihlutans
  • Kl. 11:55 Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri í Vesturbyggð
  • Kl. 12:05 Svanfríður Jónasdóttir bæjarstjóri í Dalvíkurbyggð
  • Kl. 12:15 Pallborðsumræður.
  • Kl. 13:00 Málþingi slitið

Fundarstjóri er Ágúst Þór Árnason deildarformaður lagadeildar HA
 
Kl. 13:30 Hátíðardagskrá við Íslandsklukku. Klukkunni verður hringt 12 sinnum fyrir árið 2012 af Arngrími Jóhannssyni flugstjóra og barnakór Giljaskóla syngur inn jólamánuðinn.

Kl. 13:45 Áframhaldandi dagskrá í anddyri háskólans, Miðborg. Boðið verður upp á kakó og smákökur og barnakór Giljaskóla syngur jólalög. Á bókasafni háskólans er ljósmyndasýningin „Promo Shots“ eftir Benna Vals sem tilvalið er að skoða.

Nýjast